- 1
- Guð talaði öll þessi orð og sagði:
-
- 2
- ,,Ég er Drottinn Guð þinn, sem leiddi þig út af
Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.
-
- 3
- Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.
-
- 4
- Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér né nokkrar
myndir eftir því, sem er á himnum uppi, eður því, sem er á jörðu niðri, eður
því, sem er í vötnunum undir jörðinni.
-
- 5
- Þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki dýrka þær,
því að ég, Drottinn Guð þinn, er vandlátur Guð, sem vitja misgjörða feðranna á
börnunum, já í þriðja og fjórða lið, þeirra sem mig hata,
-
- 6
- en auðsýni miskunn þúsundum, þeirra sem elska mig og
varðveita boðorð mín.
-
- 7
- Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við
hégóma, því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við
hégóma.
-
- 8
- Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.
-
- 9
- Sex daga skalt þú erfiða og vinna allt þitt verk,
-
- 10
- en sjöundi dagurinn er hvíldardagur helgaður Drottni
Guði þínum. Þá skalt þú ekkert verk vinna og ekki sonur þinn eða dóttir þín,
þræll þinn eða ambátt þín eða skepnur þínar, eða nokkur útlendingur, sem hjá
þér er innan borgarhliða þinna,
-
- 11
- því að á sex dögum gjörði Drottinn himin og jörð,
hafið og allt sem í þeim er, og hvíldist sjöunda daginn. Fyrir því blessaði
Drottinn hvíldardaginn og helgaði hann.
-
- 12
- Heiðra föður þinn og móður þína, svo að þú
verðir langlífur í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.
-
- 13
- Þú skalt ekki morð fremja.
-
- 14
- Þú skalt ekki drýgja hór.
-
- 15
- Þú skalt ekki stela.
-
- 16
- Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
-
- 17
- Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. Þú skalt
ekki girnast konu náunga þíns, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna,
né nokkuð það, sem náungi þinn á.``
-
- 18
- Allt fólkið heyrði og sá reiðarþrumurnar og
eldingarnar og lúðurþytinn og fjallið rjúkandi. Og er fólkið sá þetta, skelfdust
þeir og stóðu langt í burtu.
-
- 19
- Þeir sögðu þá við Móse: ,,Tala þú við oss og
vér skulum hlýða, en lát ekki Guð tala við oss, að vér deyjum ekki.``
-
- 20
- Og Móse sagði við fólkið: ,,Óttist ekki, því að
Guð er kominn til þess að reyna yður og til þess að hans ótti sé yður fyrir
augum, svo að þér syndgið ekki.``

Copyright ©1999-2007, The Reformed Reader, All Rights Reserved